Get ég komið fyrir nefndina?

Málsmeðferð fyrir kærunefnd útlendingamála er að jafnaði skrifleg. Kærunefnd getur, telji hún ástæðu til, gefið umsækjendum um alþjóðlega vernd  kost á að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni máls eða einstök atriði þess eftir atvikum. Telji kærunefnd ástæðu til þess að bjóða kæranda að koma fyrir nefndina er boð sent á talsmann.

Kærendur mæta að jafnaði með talsmanni sínum sem leiðbeinir kærendum frekar um hvernig fyrirtakan fer fram. Kærunefnd tryggir eins og hægt er að samskiptin við nefndina fari fram á tungumáli sem kærandi getur talað og skilið nægilega vel. Ef þörf er á útvegar kærunefndin túlk. Ef kærandi talar og skilur ensku nægilega vel getur fyrirtakan farið fram á því máli.