Hvað get ég kært?
Samkvæmt útlendingalögum má kæra allar ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja útlendingum um alþjóðlega vernd, dvalarleyfi, útgáfu ferðaskilríkis og vegabréfsáritanir. Hið sama á við um ákvarðanir Útlendingastofnunar um afturköllun slíkra leyfa. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sætir sjálfkrafa kæru til nefndarinnar. Þá eru ákvarðanir Útlendingastofnunar og lögreglu um brottvísanir og frávísanir kæranlegar.
Ákvarðanir um einstaka þætti framkvæmdar á ákvörðum Útlendingastofnunar verða ekki kærðar sérstaklega.
Ef málsmeðferð dregst verulega hjá Útlendingastofnun er hægt að kæra málshraða til kærunefndarinnar.