Málsmeðferðartími

Kærunefnd útlendingamála leggur áherslu á að vandað sé til verks og að mál sem kærð hafa verið til nefndarinnar séu rannsökuð nægilega vel áður en ákvörðun er tekin. Nefndin er jafnframt meðvituð um þá erfiðleika sem löng bið og óvissa getur haft í för með sér.

Strax eftir að kæra hefur borist óskar nefndin eftir gögnum frá Útlendingastofnun/lögreglu og frá kæranda. Ákvörðun Útlendingastofnunar/lögreglu, greinargerð kæranda, endurrit viðtals við kæranda hjá Útlendingastofnun/skýrslutöku hjá lögreglu og önnur gögn sem Útlendingastofnun/lögregla byggði ákvörðun sína á eru á meðal fyrstu gagna sem nefndin skoðar.

Nefndin getur boðið umsækjendum um alþjóðlega vernd að koma fyrir nefndina og greina frá máli sínu.

Við rannsókn mála er varða umsóknir um alþjóðlega vernd kynnir nefndin sér skýrslur alþjóðastofnana, mannréttindasamtaka og félagasamtaka sem koma að málefnum flóttamanna. Nefndin byggir einnig á rannsóknum annarra ríkja og samtaka um ástand í upprunaríki umsækjenda auk dómafordæma Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins Dómafordæmi og önnur gögn geta einnig komið til skoðunar vegna annarra kærumála hjá nefndinni. Kærandi leggur stundum fram frekari gögn á meðan kæra er til meðferðar hjá nefndinni sem nefndin þarf þá að taka til skoðunar. Rannsókn og gagnaöflun sem þessi getur tekið talsverðan tíma og af þeim sökum geta mál tafist. Þá getur sá fjöldi mála sem bíður afgreiðslu leitt til frekari tafa á úrlausn máls.

Athuga: Sökum mikillar fjölgunar kærumála undanfarna mánuði má gera ráð fyrir að áætlaður málsmeðferðartími hafi lengst talsvert. Allt kapp er lagt á að stytta hann til samræmis við markmið laga um útlendinga.

Þá athugast að með reglugerð nr. 746/2024, sem öðlaðist gildi 25. júní 2024, voru gerðar breytingar á 43. gr. reglugerðar um útlendinga, varðandi forgangsröðun vinnslu umsókna um alþjóðlega vernd. Samkvæmt breytingunum skulu stjórnvöld leitast við að forgangsraða meðferð umsókna með tilliti til lögbundinna tímafresta 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þannig að mál sem eru nálægt því að uppfylla tímamörk ákvæðisins njóti forgangs. Þetta þýðir að málsmeðferð þeirra umsókna sem þegar hafa uppfyllt tímamörk 16 og/eða 18 mánaða tímafrest 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, án þess að endanleg niðurstaða liggi fyrir, getur lengst töluvert enda ber að forgangsraða vinnslu umsókna sem ekki hafa uppfyllt framangreint tímamark.

Ef fyrirsjáanlegt er að meðferð máls dragist verulega mun kærunefnd leitast við að tilkynna umsækjanda um töfina, útskýra ástæður hennar og gefa kæranda upplýsingar um hvenær niðurstöðu sé að vænta.